Fara í efni

Boðið upp á listnám - kvöldskóla á haustönn 2024 - skráning opin til 23. maí

Á haustönn 2024 býður VMA í fyrsta skipti upp á listnám - kvöldskóla. Þetta verður tveggja anna nám og hefur það að markmiði að opna heim sjónlista fyrir nemendum og búa þá sem það kjósa undir nám á háskólastigi á sviði skapandi greina sem byggja á sjónlistagrunni. Námið verður á tveimur önnum, haust- og vorönn, og telur í það heila ríflega 70 einingar.

Námið verður þannig byggt upp að á hvorri önn verða tvær átta vikna námslotur. Í hvorri námslotu verða kenndir fjórir áfangar, þar af þrír verklegir og einn bóklegur. Kennt verður þrjá daga vikunnar, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 16:15-20:55. Um kennsluna sjá kennarar á listnáms- og hönnunarbraut VMA.

Innritunargjald í námið er kr. 106.000 kr. á 1. önn og kr. 82.500 á 2. önn

Eins og hér kemur fram er æskilegt að nemendur hafi lokið stúdentsprófi eða öðru námi á 3. þrepi, séu komnir áleiðis í námi eða hafi annan undirbúning sem gæti talist sambærilegur. Verði námsumsóknir fleiri en nemapláss verður horft til fyrra náms og annars undirbúnings við inntöku.

Með því að bjóða upp á þetta nám vill VMA koma til móts við þá sem hafa löngun til þess að efla færni sína á ýmsum sviðum sjónlista en hafa ekki átt þess kost að sækja slíkt nám í dagskóla. Það skal undirstrikað að þetta er viðbót við það listnám í dagskóla sem hefur verið í boði í VMA til fjölda ára. Eftir sem áður verður að sjálfsögðu í boði nám í dagskóla á listnáms- og hönnunarbraut.

Borghildur Ína Sölvadóttir, kennari á listnáms- og hönnunarbraut, sem hefur ásamt fleirum unnið að skipulagi og uppsetningu þessa náms, segir að verklegt nám verði sett á oddinn. Nemendur fái eins og í dagskólanum innsýn í fjölmarga og ólíka þætti í listsköpun og markmiðið sé að nemendur þeir eigin farveg og áhugasvið í sjálfstæðri sköpun. Nemendum gefist kostur á því að vinna ferlimöppur sem nýtist til umsóknar um framhaldsnám í listum og/eða hönnun á háskólastigi.

Auk verklegra áfanga verður m.a. boðið upp á bóklega áfanga eins og t.d. listasögu og listir og menningu. Til viðbótar við ýmsa verklega áfanga sem dagskólanemendur á listnáms- og hönnunarbraut taka verða í kvöldskólanum áfangar í vöruhönnun og stafrænni vinnslu í Fab Lab.

Borghildur Ína segir að miðað við fyrirspurnir um slíkt nám sé hún bjartsýn á að nægilegur fjöldi nemenda skrái sig til þess að unnt verði að ýta því úr vör á komandi hausti, haustönn 2024.

Skráning er hafin í þennan nýja kvöldskóla í listnámi og stendur til 23. maí nk. Hér er hægt að skrá sig.

Hér eru frekari upplýsingar um námið.

Einnig veita upplýsingar:

Sigurður Hlynur Sigurðsson, áfangastjóri - sigurdur.h.sigurdsson@vma.is
Véronique Legros, brautarstjóri listnáms- og hönnunarbrautar - veronique.legros@vma.is
Borghildur Ína Sölvadóttir, kennari á listnáms- og hönnunarbraut - borghildur.i.solvadottir@vma.is